Oh yes gott fólk, í kvöld er ég að fara að fyllibittast aftur
Það er orðin hefð hjá okkur hjónonum og vinapari okkar sem eru frá Þrándheimi að bjóða hvort öðru í mat. Og í kvöld er það matur hjá þeim, og mig hlakkar ekkert smá mikið til, Arne er nefnilega kokkur, virkilega góður kokkur sem hefur unnið á nokkrum af bestu veitingarstöðonum í Noregi. Þannig að ég er búin að dressa mig upp, fara í ríkið og kaupa rauðvín og búin að opna bjór. Þannig að núna er bara að bíða eftir að matarboðið byrji.
Síðast þegar það var matarboð var það hérna og karlinn minn bjó til alveg geðveikislega góðar súkkulaðikökur handa okkur. Þær eru með svona fljótandi súkkulaði inní, namm namm. En það er altaf svo spennó að sjá hvað maður fær að borða því að Arne er bara hreinn snillingur í eldhúsinu.
Jæja vil bara óska ykkur gleðilegan og góðan flöskudag
Knús og nuss
Kolla partý stelpa
Athugasemdir
góða skemmtun... drekktu einn fyrir mig..
Margrét Ingibjörg Lindquist, 2.2.2007 kl. 18:11
og 2 fyrir mig hákarlinn
Ólafur fannberg, 2.2.2007 kl. 18:37
Gleðilegan flöskudag og fáðu þér sopa fyrir mig. Ég sleiki út á allt andli þegar þú nefnir svona góðan kokk. Njótt vel og góða skemmtun
Jórunn Sigurbergsdóttir , 2.2.2007 kl. 19:30
MMMmmm langt síðan við höfum verið með svona fanzy matarboð, gerðum mikið af þessu og ég sakna þess rosalega svo nú fer ég kanski bara að finna upp á að gera þetta aftur. Njótu kvöldsins dúlla
Sigrún Friðriksdóttir, 2.2.2007 kl. 23:36
Hljómar vel :)
Vatnsberi Margrét, 3.2.2007 kl. 23:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.