Já það er alveg ótrúlegt hvað tíminn líður hratt. Sumarið búið og skólinn byrjaður aftur, en fyrsti skóladagurinn var í dag. Ég er komin í nýjan hóp og líst bara mjög vel á þetta, allavegana hingað til. Helgin hjá okkur var alveg yndisleg, við buðum vinum okkar í mat á laugardaginn. Það var mikið borðað og drukkið, og svo var að spila playstation. En hérna var mikil keppni fram á morgunn. En við skemmtum okkur nú bara nokkuð vel. Þynkan lét aðeins vita af sér hérna í gær, en samt ekkert rosalega mikið. En gærdagurinn fór bara í að kúra á sófanum, horfa á video og borða. Ég er nefnilega það skrítin að þegar ég er þunn þá borða ég stanslaust.
Núna er bara vika í Nice ferðina okkar og ég get varla beðið. Ef veðrið heldur sér verður 30 stiga hiti og sól. En ég verð að taka lærdóminn með mér til Frakklands í þetta skiptið þar sem við eigum að skila inn verkefni um miðjan september. En það ætti nú að reddast.
Knús og kossar
Kolla Skólastelpa
Athugasemdir
gangi þér vel í skólanum ...
Margrét M, 20.8.2007 kl. 13:58
OOOOO svo gaman að leika,skvetta smá í sig og hafa gaman af lífinu........borða svo bara vel daginn eftir
Gangi þér vel Kolla mín.
Solla Guðjóns, 20.8.2007 kl. 14:20
Góða ferð til Nice og gangi þér líka vel í skólanum.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 20.8.2007 kl. 16:17
Hæ litla gangi þér vel í skólanum og góða ferð í sólina.
Kristbjorg (IP-tala skráð) 20.8.2007 kl. 22:13
Sumarið kom ekki hingað í ár en það verður bara þeim mun betra næsta ár Gangi þér vel með skólastartið skvísa og njóttu þín í Nice.
Klemssss
Sigrún Friðriksdóttir, 21.8.2007 kl. 17:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.