jams, þá er barasta heil vika þar til ég fer næst í vinnuna. Mér finst þetta vera fín vinna en mikið rosalega er ég þreitt þegar ég er búin að vinna, nema í gær. Danel var í alveg dúndur góðu skapi og við skemmtum okkur alveg konunglega.
Slæmufréttirnar eru þær að mér er búið að vera íllt í hausnum í 4 daga í röð núna. Jósep vill meina að þetta sé ennisholubólga en það kemur bara í ljós, ég vona að ég verði í góðu formi um helgina allavegana.
Annars er bara voða lítið að frétta af okkur, Jósep er að vinna kvöldvakt alla þessa viku og ég er bara að læra og svoleiðis
Það er bara búið að vera ótrúlega rólegt á þessu heimili síðustu dagana, enda segja þeir að það sé alltaf logn á undan storminum.
Þar til næst
Kolla
Flokkur: Bloggar | Miðvikudagur, 8. nóvember 2006 | Facebook
Athugasemdir
Hæ Kolla bara að láta vita af mér..kveðja Stína..
Kristbjörg Jónsdóttir (IP-tala skráð) 9.11.2006 kl. 13:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.