Jæja þeir sem seldu okkur lap toppið eru loksins búnir að gefa sig, þeir geta nefnilega ekki gert við tölvuna og urðu að senda hana til framleiðanda, þeir eru ekki byrjaðir að skoða hana enþá einusinni. Og þar sem þetta er búið að taka svo langan tíma þá fáum við peninginn endurgreiddan. Sem þíðir að ég get keypt sömu tölvuna 13 þús kr íslenskar ódýrari eða keypt eina sem er betri, hummmmmm.
Jósep er að vinna kvöldvakt í kvöld (síðasta vaktin hans hja Pratt) svo byrjar hann í nýju vinnunni næsta fimtudag. Og bílinn okkar er að fara í viðgerð á morgunn og það er bara allt að gerast.
En núna er ég reyndar búin að finna tölvuna sem mig langar í:)
Jæja verð að fara að halda áfram að læra.
Bestu kveðjur frá Noregi
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.