Í dag er síðasti dagurinn sem karlinn er heima, að vísu er bara vika þar til hann kemur heim aftur en það er nógu helv... leiðinlegt fyrir það skal ég segja ykkur. Ég er nú mikið að spá í að fá mér lítið gæludýr, þannig að ég hef allavegana einhvern heima sem tekur á móti manni. Verst að það er svo dýrt að fá sér gæludýr hérna í Noregi. En ég sé bara til.
Jæja ætla að fara að njóta dagsins með karlinum
Bless í bili
Athugasemdir
fáðu þér páfagauk sem talar .....
Ólafur fannberg, 10.1.2007 kl. 12:58
ég er sammála þér ..það er ferlega leiðinlegt þegar kallinn er að heimann ...rosalega eigum við þá skemmtilega menn
Margrét M, 10.1.2007 kl. 13:23
Neiiiii ekki páfaguk þeir eru hundleiðinlegir!!!! Fáðu þér þá heldur kött þeir eru ókeypis og létt að hugsa um og geta knúsast með manni líka.
Sigrún Friðriksdóttir, 10.1.2007 kl. 15:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.